Fréttir
Ný skákstig!
Ný ICCF skákstig (3 2016) gefin út. Sjá
nánar hér.
Svíþjóð - Ísland
Landskeppni við Svíþjóð hófst
1. desember 2015. Teflt er á 25 borðum. Sjá nánar
hér.
Daði Örn Jónsson Evrópumeistari!
Daði Örn Jónsson var að tryggja sér
sigur í 68. Evrópumeistaramóti einstaklinga
í bréfskák. Mótinu, sem hófst
15 desember 2013, er ekki lokið en nú er ljóst
að enginn af andstæðingum hans getur náð
honum að vinningum (sjá mótstöflu). Þessi
glæsilega frammistaða Daða er langbesti árangur
sem íslenskur bréfskákmaður hefur náð
og jafnframt einn besti árangur sem íslenskur skákmaður
hefur náð fyrir og síðar. Félag íslenskra
bréfskákmanna óskar Daða til hamingju með
titilinn. Sjá töflu hér.
Þorsteinn Þorsteinsson nær IM-áfanga!
Þorsteinn Þorsteinsson náði góðum
árangri á EM landsliða. Hann hlaut 6 vinninga
gegn sterkum andstæðingum og náði með því
sínum fyrsta áfanga að IM-titli. Félag
íslenskra bréfskákmanna óskar Þorsteini
til hamingju með áfangann. Sjá töflu hér.
Bandaríkin - Ísland
Landskeppni við Bandaríkin hófst 2. janúar
2014 er lokið með öruggum sigri Íslands sem
hlaut 34.5 v. gegn 27.5 v. Bandaríkjanna. Sjá nánar
hér.
Eggert Ísólfsson útnefndur
alþjóðlegur meistari!
Eggert Ísólfsson hefur farið
mikinn í bréfskákinni undanfarið
eftir langt hlé. Hann sýnir að hann hefur engu
gleymt og mætir sterkur til leiks. Á stuttum tíma
hefur hann náð frábærum árangri og
landað alþjóðlegum bréfskáktitli,
IM. Félag íslenskra bréfskákmanna
óskar Eggerti til hamingju með titilinn.
Daði Örn Jónsson landar SIM-titli!
Daði Örn Jónsson kom inn
í bréfskákina með látum og lét
þegar til sín taka. Hann var skotfljótur að
landa IM-titil og nú hefur hann bætt við SIM-titli.
Sannarlega glæsilegur árangur.
Félag íslenskra bréfskákmanna óskar
Daða til hamingju með titilinn.
Bréfskák ársins 2014
Að lokinni kosningu og mati þriggja stórmeistara
var skák Árna H. Kristjánssonar gegn Tom James
Craig valin bréfskák ársins 2014. Sjá
skákina hér.
ICCF Olympiad 20 Preliminaries - Section 04 sem
hófst 10. desember 2012 er lokið. Rússar sigruðu
í riðlinum en íslenska sveitin varð í
fjórða sæti. Sjá nánar hér.
Skotland - Ísland
Landskeppni við Skotland hófst 1. desember 2014. Teflt
er á 27 borðum. Sjá nánar hér.
Þýskaland - Ísland
Landskeppni við Þjóðverja sem hófst
10. apríl 2012, lauk 1. október 2014. Þjóðverjar
sigruðu með 31 v. gegn 26 v. Íslendinga. Sjá
nánar hér.
Ástralía - Ísland
Landskeppni við Ástralíu hófst 15. september
2014. Teflt er á 29 borðum. Sjá nánar hér.
9th European Team Championship - Final
Níunda úrslitakeppni Evrópumóts landsliða
hófst 10. júní 2014. Um titilinn keppa 13 sveitir
og eru margar þeirra á meðal sterkustu þjóða
heims. Það er því ljóst að íslenska
sveitin mun eiga við ramman reip að draga. Sjá nánar
hér.
Danmörk - Ísland
Landskeppni við Dani sem hófst 10. apríl 2012,
lauk 17. apríl 2014. Íslendingar sigruðu örugglega
með 26,5 v. gegn 13,5 v. Dana. Sjá nánar hér.
Bandaríkin - Ísland
Landskeppni við Bandaríkin hófst 2. janúar
2014. Teflt er á 31 borði sem er metfjöldi í
landskeppnum Íslendinga. Sjá nánar hér.
Daði Örn Jónsson
útnefndur alþjóðlegur meistari!
Daði Örn Jónsson hefur farið mikinn í
bréfskákinni frá því að hann
hóf keppni. Árangurinn hefur ekki látið
á sér standa og nú hefur ICCF útnefnt
hann alþjóðlegan bréfskákmeistara,
IM. Félag íslenskra bréfskákmanna óskar
Daða til hamingju með titilinn.
Holland - Ísland
Landskeppni við Hollendinga sem hófst 1. maí
2012, lauk 5. mars sl. Íslendingar sigruðu örugglega
með 18,5 v. gegn 11,5 v. Hollendinga. Sjá nánar
hér.
Þýskaland - Ísland
Landskeppni við Þjóðverja
hófst 21. janúar 2013. Teflt er á 28 borðum.
Sjá nánar hér.
ICCF Olympiad 20 Preliminaries- Section
04 hófst 10. desember 2012. Níu þjóðir
eru í riðlinum og líklega verður á
brattan að sækja fyrir íslensku sveitina. Sjá
nánar hér.
England - Ísland
Landskeppni við Englendinga sem hófst 26. mars 2011,
lauk 5. nóvember sl. Keppninni lauk með jafntefli, 15-15
eftir góðan endasprett Englendinga. Sjá nánar
hér.
Spánn - Ísland
Landskeppni við Spánverja sem hófst 20. nóvember
2010 lauk 7. september 2012. Íslendingar hlutu 19 vinninga
gegn 11 vinningum Spánverja. Þetta verða að
teljast mjög góð úrslit þar sem meðalstig
Spánverja voru 2282 á móti 2279 stigum okkar
manna. Sjá nánar hér
Danmörk - Ísland
Landskeppni við Dani hófst
10. apríl 2012. Teflt er á 20 borðum. Sjá
nánar hér.
Árni H. Kristjánsson
Íslandsmeistari í bréfskák
22. Bréfskákþingi Íslands og minningarmóti
um Sverrir Norðfjörð er lokið. Mótið
hófst 1. mars 2010 og voru keppendur 13 og þar af 5
erlendir. Með þessu sniði gafst keppendum tækifæri
til að ná SIM- og IM-áföngum. Leikar fóru
þannig að Árni H. Kristjánsson sigraði
með 8,5 vinninga úr 12 skákum. Í öðru
til fjórða sæti með 8 vinninga, urðu Baldvin
Skúlason, Sonny Colin (Svíþjóð) og
Jónas Jónasson. Þessir keppendur náðu
allir IM-áföngum. Með sigrinum tryggði Árni
sér jafnframt IM, alþjóðlegan meistaratitil
í bréfskák. Félag íslenskra bréfskákmanna
óskar Árna til hamingju með sigurinn og IM-titilinn.
Sjá nánar hér
Níunda Evrópumót
landsliða hófst 15. júlí 2011. Sjá
nánar hér
Stjórnin
|